Jæja, nú er kellinn kominn
í vetrarfrí, ekki til frásögu færandi nema það að það verður
líklega meira að gera hjá mér heldur en þegar ég er ekki í
fríi!!!!
En
svona til að deila aðeins með ykkur því sem hefur verið í gangi hjá
mér...
Ég
var á leiðinni út úr MK á þriðjudaginn og sá gaur vera að reykja
fyrir utan hurðina, hjá honum voru nokkrar 3-4 litlar stelpur
á grunnskóla aldri, svona ca. 12 ára og þær stóðu hjá honum og
druuullluðu yfir hann, "þú ert sko EKKI töff", "það er sko
ógeððslegt að reykja", "það er EKKI töff að reykja", "nei það er
ekki töff" sagði önnur og bætti við "Sylvía Nótt er töff" "já,
afþví að hún reykir ekki", "og þú ert ógeð". Þetta var svona
basicly það sem gekk á, gaurinn var eginlega farinn að fara soldið
inní sig, en reyndi svona að flissa að þessu samt. Þessar litlu
voru líka bara með móral og ekkert að djóka.






Já, var á MMA
æfingu áðan, gaman eins og alltaf. Er farinn að pæla í alvöru að
farað stunda þetta af alvöru. En vó, lenti í því að þurfa að slást
við stelpu á æfingunni, var góður með mig og ætlaði að sleppa því
allveg að beita kröftum og vinna þetta bara á tækninni, já nei nei,
svo er hún bara drullu vön gella og miklu teknískari en ég og þegar
hún var búin að tvísprengja á mér vörina, með HNÉNU á sér og ná mér
í einhvern lás sem innihélt frekar óþægilet hálstak og orðinn hálf
loftlítill, þá sagði ég bara fokk nei, þetta er ekki að gerast .
Þannig að ég tók á henni með öllum kröftum og nottla braut næstum
grei stelpuna. Svo þegar maður er að pæla... það er ekkert töff,
þetta var stelpa... þetta er eginlega svona lose/lose aðstaða, því
ekk hefði það verið betra hefði hún lamið mig í druslur. Ekki gott
mál...
Já en svona er
það að vera matsjóv...

En, sjeet hvað er mar að
pæla, allir bara e-ð á bjórkveldi, ég heima, að gera ritgerð
úr bók sem ég á ekki, á tungumáli sem ég skil ekki og allt bara í
messi. Neinei, þetta reddast því núna er ég í vetrarfríi með nægan
tíma og búinn að gera skothelt plan fyrir þessa daga. Nú er jeppinn
nebbló orðinn so skipulagður. En þið þekkið það líklega hvað maður
er alltaf duglegur þegar kemur að því að læra.... ....við allt
annað en það sem á að gera.
Og
vó, ég held að ég hafi ekki kveikt á Ps2 síðan á
jólunum....

Hvað var það samt svona í
alvöru að Svíarnir töpuðu 5:0 fyrir Rússum
???